Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
19. mars 2009 09:56

Seðlabankinn lækkar stýrivexti um eitt prósentustig

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 1 prósentustig, úr 18% í 17%.  Aðrir vextir Seðlabankans verða einnig lækkaðir í sama mæli. Stýrivöxtum var síðast breytt þann 28. október og voru þeir þá hækkaðir um 6 prósentustig í 18% en þeir voru lækkaðir um 3,5 prósentustig í 12% 16 dögum áður. 

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir jákvætt að vaxtalækkunarferlið skuli hafið en hann telur þessa lækkun í dag ganga allt of skammt.

Heimild: Seðlabankinn og mbl.is



Til baka


Fréttalisti


Félagafrelsi

Með félagafrelsi er átt við rétt manna...