18. mars 2009 11:33
Hæstiréttur hefur dæmt fyrirtæki til greiðslu skaðabóta vegna ólögmætrar uppsagnar starfsmanns sem tilkynnt hafði um töku fæðingarorlofs. Rétturinn komst að þeirri niðurstöðu og fyrirtækinu hefði ekki tekist að sýna fram á gildar ástæður fyrir uppsögninni í skilningi 30. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof.
Fyrirtækið hélt því fram að rekstrarlegar- og skipulagslegar ástæður hefðu verið fyrir uppsögninni þar sem verkefnum starfsmannsins hefði verið úthýst. Hæstiréttur mat þessar ástæður og taldi þær ekki gildar. Vísað var til þess m.a. að verkefnum starfsmannsins hafi verið úthýst skömmu eftir að hann tilkynnti um töku orlofsins, fyrirtækið hafi ekki sýnt fram á að þeirri ráðstöfun hafi fylgt einhver spanaður auk þess sem augljóslega hafi ekki nema hluti verkefna hans flust til þess fyrirtækis sem þeim var úthýst til.
Dóminn má lesa í heild sinni hér.
Til baka