17. mars 2009 15:52
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á sínum vikulega blaðamannafundi í dag að ætlun stjórnenda HB-Granda að greiða út háan arð, á meðan hækkunum til launafólks er frestað, væri siðlaus með öllu. Hún sagði jafnframt að ríkisstjórnin hefði enga aðkomu að málinu en þessi framkoma vekti furðu sína.
Til baka