13. mars 2009 11:29
Athygli vekur hversu fjölbreytt framboð af fiskmeti er í fiskbúðum hér á landi og sérhæfing töluverð. Til eru verslanir sem selja ódýran lítið unnin fisk, verslanir sem bjóða fjölbreytt úrval og selja einfalda tilbúna rétti beint í ofninn og verslanir sem selja flókna sælkerarétti tilbúna til eldunar. Mesta úrvalið reyndist vera hjá Fiskbúðinni Hafberg en hún var jafnframt oftast með hæsta verðið í könnuninni sem birt var í gær. Þar voru 28 gerðir af fiskmeti á boðstólum af þeim 29 sem skoðaðar voru í könnunni. Einnig buðu þeir upp á 31 tegund af fiskiréttum. Aðeins Fylgifiskar seldu fleiri fiskrétti eða 32, en aðeins 4 gerðir af fiskmeti af þeim sem könnunin tók yfir.Mjög misjafnt er hvað lagt er í fiskréttina og því ekki hægt að gera raunhæfan verðsamanburð á þeim. Hægt var að fá ódýrasta fiskréttinn á 790 kr.kg. í Litlu Fiskbúðinni í Hafnarfirði og dýrasta réttinn var að finna í Fylgifiskum, Suðurlandsbraut á 3.250 kr.kg.
Fiskbúðin Freyja var með minnst úrval fiskmetis eða 11 tegundir af því sem kannaðar voru og enga fiskrétti.
Verðlagseftirlit ASÍ skoðaði verð á ferskum fiski, miðvikudaginn 11. mars 2009.
Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum: Nóatúni Hringbraut 119, Melabúðinni Hagamel 39, Fiskbúðinni Vegamót, Nesvegi 100, Fiskbúðinni Mosfellsbæ, Háholti 13 – 15, Fiskbúðinni, Freyjugötu 1, Fiskbúðinni Hafrúnu, Skipholti 70, Fiskisögu Höfðabakka 1,Hagkaupum, Kringlunni, Fiskikónginum, Sogavegi 3,Fiskbúðinni Hafberg, Gnoðavogi 44, Fylgifiskum ehf., Suðurlandsbraut 10, Gallerý kjöti, Grensásvegi 48, Fiskbúðinni Freyju, Bakkabraut 1 Kóp, Fiskbúðinni Hófgerði 30 Kóp., Fiskbúðinni Trönuhrauni 9 Hf., Litlu fiskbúðinni, Miðvangi 41 Hf., og Fjarðarkaupum Hólshrauni 1B Hf.Ekki reyndist unnt að mæla verð í Fiskbúð Einars, Arnarbakka 4 – 6 og Fiskbúðinni, Lækjargötu 34b Hafnarfirði, vegna þess að þær voru lokaðar vegna veikinda starfsmanns.
Gallerý fiskur neitaði þátttöku
Gallerý fiskur við Nethyl heimilaði ekki aðilum frá verðlagseftirlitinu að taka niður verð í verslun sinni.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í þessa könnun í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.Til baka