Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
12. mars 2009 15:20

Mikill munur á verði í fiskbúðum

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á ferskum fiski í verslunum á höfuðborgarsvæðinu, miðvikudaginn 11. mars. Kannað var verð á 29 tegundum fiskmetis í fiskbúðum og fiskborðum stórmarkaða og reyndist Fiskbúðin Hafberg oftast með hæsta verðið eða í 8 tilvikum. Lægsta verðið var oftast að finna í Litlu fiskbúðinni, Miðvangi 41, Hafnarfirði eða í 9 tilvikum.

Mikill verðmunur var á milli verslana á öllum þeim tegundum sem skoðaðar voru. Munur á hæsta og lægsta verði var í flestum tilvikum yfir 60% og á mörgum tegundum reyndist mun meiri verðmunur. Mestur verðmunur í könnuninni var á þorskflökum með roði.Þau voru dýrust1.490 kr./kg. í Fiskbúðinni Hafberg en ódýrust 690 kr. kg. í Fiskbúðinni Freyju. Verðmunurinn er 800 kr. eða 116%.Minnstur verðmunur var á heilli slægðri Ýsu sem kostaði 290 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Freyju og 299 kr./kg. hjá Fiskisögu Höfðabakka. Munurinn er 3,1%, en varan var aðeins til hjá þessum tveimur verslunum.

Athygli vakti að Fiskbúðin Freyja, Bakkabraut 1, Kópavogi, sem er ný verslun rekin með lítilli yfirbyggingu og selur lítið unnin fisk, var 9 sinnum með lægsta verðið af þeim 11 tegundum sem skoðaðar voru og til voru í búðinni.

Töflu sem sýnir verðsamanburð milli fiskverslana má sjá hér.

Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum: Nóatúni Hringbraut 119, Melabúðinni Hagamel 39, Fiskbúðinni Vegamót, Nesvegi 100, Fiskbúðinni Mosfellsbæ, Háholti 13 – 15, Fiskbúðinni, Freyjugötu 1, Fiskbúðinni Hafrúnu, Skipholti 70, Fiskisögu Höfðabakka 1,Hagkaupum, Kringlunni, Fiskikónginum, Sogavegi 3, Fiskbúðinni Hafberg, Gnoðavogi 44, Fylgifiskum ehf., Suðurlandsbraut 10, Gallerý kjöti, Grensásvegi 48, Fiskbúðinni Freyju, Bakkabraut 1 Kóp, Fiskbúðinni Hófgerði 30 Kóp., Fiskbúðinni Trönuhrauni 9 Hf., Litlu fiskbúðinni, Miðvangi 41 Hf., og Fjarðarkaupum Hólshrauni 1B Hf. Ekki reyndist unnt að mæla verð í Fiskbúð Einars, Arnarbakka 4 – 6 og Fiskbúðinni, Lækjargötu 34b Hafnarfirði, vegna þess að þær voru lokaðar vegna veikinda starfsmanns.

Gallerý fiskur neitaði þátttöku

Gallerý fiskur við Nethyl heimilaði ekki aðilum frá verðlagseftirlitinu að taka niður verð í verslun sinni.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í þessa könnun í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Til baka


Fréttalisti


Foreldraorlof

er samkvæmt lögum 13 vikna frí sem foreldrar...