Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
11. mars 2009 14:38

Kristinn Örn Jóhannesson er nýr formaður VR

Kristinn Örn  Jóhannesson var í dag kjörinn nýr formaður VR. Rafrænni allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna VR um framboð til formanns, stjórnarmanna og lista til stjórnar og trúnaðarráðs lauk á hádegi í dag.  Sigur Kristins Arnar var nokkuð öruggur en hann hlaut 42% greiddra atkvæða.  Gunnar Páll Pálsson fráfarandi formaður hlaut fæst atkvæði frambjóðandanna þriggja.

Kristinn hlaut 2.651 atkvæði eða 41,9%, Lúðvík Lúðvíksson fékk 1.904 atkvæði eða 30% og Gunnar Páll Pálsson hlaut 1.774 atkvæði eða 28%. Auðir og ógildir seðlar voru 409.

Auk þess sem kosið var á milli frambjóðendanna þriggja til formanns VR, var kosið á milli sjö frambjóðenda í einstaklingskjöri til þriggja stjórnarsæta og tveggja lista með fjórum frambjóðendum til stjórnar og 82 einstaklingum til trúnaðarráðs.

Annars vegar er um að ræða A-lista trúnaðarráðs og trúnaðarmanna VR og hins vegar L-lista lýðræðis fyrir VR.

Atkvæði greiddu 6.738.  Á kjörskrá voru alls 25.137. Kosningaþátttaka var því 26,8%.

Úrslit eru sem hér segir:

Kosning um formann í einstaklingsbundinni kosningu

 

Fjöldi atkvæða

% af greiddum atkvæðum

Kristinn Örn Jóhannesson

2651

41,9 %

Lúðvík Lúðvíksson

1904

30,1 %

Gunnar Páll Pálsson

1774

28,0 %

Tek ekki afstöðu

409

Kosning um þrjá stjórnarmenn í einstaklingsbundinni kosningu

Fjöldi atkvæða

% af greiddum atkvæðum

Ragnar Þór Ingólfsson

2394

59,6 %

Óskar Kristjánsson

1774

44,2 %

Ágúst Guðbjartsson

1695

42,2 %

Hallur Eiríksson

1690

42,1 %

Jón Hrafn Guðjónsson

1633

40,7 %

Kristófer Jónsson

1484

37,0 %

Gunnar Böðvarsson

1372

34,2 %

Tek ekki afstöðu

2724

(Rétt er að geta þess að þegar niðurstaðan var kynnt framboðum/frambjóðendum var hlutfall atkvæða þeirra sem voru í einstaklingskjöri til stjórnar ranglega reiknað. Það breytti þó engu um niðurstöðuna.  Þessi mistök hafa verið lagfærð hér að framan.)

Kosning um lista með framboðum 4 stjórnarmanna og 82 í trúnaðarráð

Fjöldi atkvæða

% af greiddum atkvæðum

L listi lýðræðis fyrir VR

3189

62,9 %

A listi trúnaðarráðs og trúnaðarm. VR

1879

37,1 %

Tek ekki afstöðu

1670

Samkvæmt framanskráðu og niðurstöðu sem varð á Nýársfundi trúnaðarráðs og trúnaðarmanna VR vegna kosningar varamanna í stjórn teljast eftirtalin vera réttkjörin skv. 20. gr. laga félagsins og hefst kjörtímabil þeirra á aðalfundi VR fyrir árið 2009 sem haldinn verður 2. apríl nk.

Formaður VR  - til tveggja ára

Kristinn Örn Jóhannesson 

Fjórir stjórnarmenn samkvæmt listakosningu – til tveggja ára

Ásta Rut Jónasdóttir

Bergur Þór Steingrímsson

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir

Bjarki Steingrímsson

Þrír stjórnarmenn í einstaklingsbundinni kosningu – til tveggja ára

Ragnar Þór Ingólfsson

Óskar Kristjánsson 

Ágúst Guðbjartsson 

Þrír varamenn í stjórn VR – til eins árs

Hólmfríður Björg Petersen

Þorlákur Jóhannsson

Sigríður Stefánsdóttir



Til baka


Fréttalisti


Fæðingarorlof

er samkvæmt lögum allt að þriggja mánaða tímabil...