Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
11. mars 2009 10:53

Verkalýðsforingjar fangelsaðir í Íran

Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) hefur sent frá sér tilkynningu þar sem aukinni kúgun íranskra stjórnvalda gegn meðlimum verkalýðsfélaga er harðlega mótmælt. Háttsettir meðlimir Haft Tapeh verkalýðsfélagsins í Íran hafa verið handteknir á undanförnum dögum. Þeim hefur verið sleppt eftir yfirheyrslur en forseti félagsins hefur nú verið í haldi lögreglu í þrjá daga. Hinir handteknu hafa allir verið ákærðir fyrir áróður gegn ríkinu þegar þeir hafa í raun verið að berjast fyrir almennum réttindum launafólks, eins og útborgun launa á réttum tíma og mannsæmandi vinnuaðstöðu. ITUC hefur þegar skrifað forseta Írans nokkur bréf þar sem árásum gegn frjálsum verkalýðsfélögum og foringjum þeirra er harðlega mótmælt.

Sjá nánar hér.

Til baka


Fréttalisti


EES - samningurinn

er skammstöfun fyrir Samningurinn um Evrópska Efnahagssvæðið...