11. mars 2009 09:03
Námsheimsóknir, sem starfræktar voru áður undir heitunum ARION og CEDEFOP hafa verið sameinaðar og eru nú hluti af Menntaáætlun ESB.Námsheimsóknir eru þriggja til fimm daga heimsóknir lítilla (hámark 15 manna) hópa sérfræðinga og ákvarðanatakenda frá Evrópu til tiltekins lands með það að markmiði að kynnast mennta- eða fagsviði í einu landi auk þess að stuðla að tengslamyndun þátttakenda og móttakenda.
Sex til sjö Íslendingum gefst kostur á að fara í námsferð á hverju ári og er sérstök áhersla lögð á að aðilar vinnumarkaðarins nýti sér ferðirnar. Um 300 ólíkar námsferðir eru nú í boði og eru allar nánari upplýsingar og yfirlit yfir námsheimsóknir á vefsíðu CEDEFOP http://studyvisits.cedefop.europa.eu/ og þar eru einnig umsóknareyðublöð sem fylla verður út rafrænt jafnframt því að skila skal útprentuðu og undirrituðu eintaki af umsókn til Landskrifstofu.
Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum fyrir næsta skólaár 2009 til 2010. Umsóknarfrestur er til 9. apríl 2009 og eru stjórnendur og leiðbeinendur í starfsmenntun hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um námsheimsóknirnar veitir Ásta Sif Erlingsdóttir, verkefnisstjóri í síma 525 4227, netfang: astasif@hi.is , Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB, Dunhaga 5, 107 Reykjavík.
Námsheimsóknirnar eru ein af þveráætlun Menntaáætlunarinnar og er þeim ætlað að styðja við stefnumótun og samstarf í Evrópu með tilvísun í Lissabon ferlið, Menntun og þjálfun 2010, Bologna og Kaupmannahafnar yfirlýsingarnar.Til baka