Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
09. mars 2009 10:39

Atvinnuleysi kvenna í heiminum eykst mikið í kreppunni

Í nýrri skýrslu Alþjóða vinnumálastofnunarinnar (ILO) kemur fram að 22 milljónir kvenna eigi á hættu að missa vinnuna á þessu ári í heiminum öllum vegna kreppunnar. Það voru dæmigerðar karlagreinar sem urðu fyrstar fyrir barðinu á efnahagssamdrættinum, greinar eins og fjármála- og byggingageirinn. Nú eru áhrif kreppunnar farin að seytla inn í þjónustu og verslun þar sem konur eru fjölmennar.  Í  skýrslu ILO kemur fram að vegna efnahagssamdráttarins muni 51 milljón starfa tapast í heiminum á þessu ári.



Til baka


Fréttalisti


Gengislækkun

veldur því að erlendur gjaldeyrir verður dýrari í íslenskum...