Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
06. mars 2009 10:59

Ný skýrsla sýnir að launamunur kynjanna á heimsvísu er meiri en áður var talið

Skýrsla sem Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) sendir frá sér í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars sýnir að launamuur kynjanna er mun meiri en opinberar tölur hafa sýnt. Skýrslan byggir á könnun meðal 300 þúsund karla og kvenna á vinnumarkaði í 20 löndum.

Niðurstaðan sýnir launamun upp á 22% í stað 16,5% sem opinberar tölur sýndu á sama tíma í fyrra. Skýrslan sýnir líka afdráttarlaust að aðild fólks, og þá sérstaklega kvenna, að stéttarfélögum og þar með aðild að kjarasamningum skilar mun hærri launum og minni launamun en hjá þeim sem ekki eru í stéttarfélögum. „Þessi niðurstaða sýnir ótvírætt hvað aðild fólks að stéttarfélögum er mikilvæg, og kannski sérstaklega nú þegar kreppir að og lífskjör fólks um allan heim dragast saman“, segir Guy Ryder framkvæmdastjóri ITUC.



Til baka


Fréttalisti


Jafnrétti til launa

Atvinnurekendum ber samkvæmt lögum skylda til að greiða...