05. mars 2009 13:28
Þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu þriðjudaginn 3. mars, kom í ljós að Bónus var með lægsta verðið á 34 vörutegundum af þeim sem skoðaðar voru.Krónan var með lægsta verðið á 12 vörutegundum, Kaskó á 11 og Nettó á þremur. Athygli vekur að á 18 vörum var einungis einnar krónu verðmunur milli verslana á ódýrasta verði og því næst ódýrasta. Allar mjólkurvörurnar féllu undir þann hatt.
Af þeim 51 vörutegundum sem skoðaðar voru var Nettó með hæsta verðið í 34 tilvikum. Kaskó reyndist vera með hæsta verðið á 13 vörutegundum, Krónan 10 vörutegundum og Bónus var með hæsta verðið á 3 vörutegundum.
Mestur verðmunur í könnuninni var 92% á mælieiningaverði af Colgate Total tannkremi sem var dýrast í Nettó og Kaskó, kostaði kr. 4.990 lítrinn þar. Ódýrast var tannkremið í Bónus kr.2.590 l. Verðmunur á heilhveitibrauði var mestur 84% en var 95% í verðkönnun verðlagseftirlitsins í janúar. Mikill verðmunur var á kjötvörum, fiski, frosnum matvælum, spagetti, hrísgrjónum og hreinlætisvörum.
Mestur verðmunur í ávöxum og grænmeti var á sveppum 53%. Þeir voru ódýrastir í Nettó þar sem þeir voru seldir í lausu og dýrastir í Kaskó, þar sem þeir voru seldir í 250g öskju.
Mjög lítill verðmunur var á forverðmerktum vörum eins og td. SS vínarpylsum. Kílóverð á þeim var 1.013 kr. í Bónus en 1.125 kr. hjá hinum verslununum. Eins og verðlagseftirlitið hefur áður bent á er verðmunur forverðmerkta vara yfirleitt mun minni en á vörum verðmerktum í versluninni. Slík forverðmerking er bönnuð og hamlar eðlilegri verðsamkeppni. Brýnt er að samkeppnisyfirvöld tryggi að verðsamkeppni á þessum vörum verði með eðlilegum hætti.
Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum: Bónus Faxafeni, Krónunni Lindum, Nettó Hverafold og Kaskó Vesturbergi.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Töflu með vöruverði í könnuninn má sjá hér.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.Til baka