04. mars 2009 15:13
Evrópusamtök verkalýðsfélaga (ETUC) ætla að hleypa af stokkunum herferð í maí þar sem venjulegir borgarar eru settir í brennidepil. Í tilkynningu frá ETUC segir að það sé algerlega óásættanlegt borgarar og verkalýður í Evrópu beri byrgðar af efnahagshruni sem það átti engan þátt í að skapa.
Þá er bent á að mikil mótmæli hafi þegar orðið í nokkrum Evrópulöndum vegna efnahagsástandsins og er Ísland nefnt í þeim hópi. Að mati ETUC þarf nú að leggja áherslu á grundavallarréttindi hvers vinnandi manns, atvinnu öryggið og tryggan kaupmátt.Að þessu tilefni verð uppákomur í fjórum stórborgum Evrópu dagana 14.-16. maí í vor.
Yfirlýsingu ETUC má lesa hér.
Til baka