Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
03. mars 2009 10:31

Menntatorg

Föstudaginn 6. mars verður opið hús  í Skeifunni 8 frá kl. 14-18 en þar munu ýmsir fræðsluaðilar kynna nám og ýmis úrræði fyrir atvinnulausa einstaklinga. Þessi viðburður, sem hefur fengið nafnið Menntatorg, fer nú fram í fyrsta skipti en breyttar aðstæður í íslensku efnahagslífi hafa orðið til þess að atvinnuleysi hefur aukist gríðarlega á síðustu mánuðum. 

Atvinnuleysi hefur aukist einna mest hjá þeim sem hafa stutta skólagöngu og á Menntatorginu munu fjölmargir fræðsluaðilar kynna hversu fjölbreytt úrræði standa þessum hópi til boða. Boðið verður upp fjölbreytta dagskrá eins og t.d. örnámskeið, kynningar á námi og ýmsum möguleikum, viðtöl hjá náms- og starfsráðgjöfum o.fl.

Sjá auglýsingu hér.



Til baka


Fréttalisti


Hlutastarf

Starfsmaður telst vera í hlutastarfi ef umsamið starfshlutfall...