Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
02. mars 2009 10:40

Hugmyndamarkaður á föstudaginn

Samstarfshópurinn ALLAR HEIMSINS KONUR stendur að hugmyndamarkaði þar sem kynnt verður sú þjónusta og verkefni sem verið er að vinna að til aðauðvelda aðgang kvenna af erlendum uppruna og fjölskyldna þeirra að íslensku samfélagi. Hugmyndamarkaðurinn verður föstudaginn 6. mars kl. 13:00 – 16:00 í sal Leik- og menntasviðs Reykjavíkurborgar við Fríkirkjuveg 1 (gamli Miðbæjarskólinn)

Fjölmargar stofnanir og samtök kynna þjónustu sína og verkefni auk þess sem örkynningar verða haldnar. Þær standa yfir í ½ tíma klukkan 13:30 og 15:00.

 Markaðurinn er ókeypis og eru allir sem láta sig málið varða hjartanlega velkomnir. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Sjá auglýsingu.



Til baka