25. febrúar 2009 10:33

Verðlag hækkaði um 0,51% í febrúar og mælist ársverðbólga nú 17,6%, að því er fram kemur í nýrri mælingu Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Sé horft til síðustu þriggja mánaða má sjá þess glögg merki að verðbólguhraðinn fer nú minnkandi.
Mest áhrif til hækkunar á vísitölunni að þessu sinni hefur verðhækkun á fötum og skóm um 6,3% frá því í janúar sem skýrist af vetrarútsölulokum. Þá hækkar verð á pakkaferðum til útlanda um 8,6% og verð á flugfargjöldum til útlanda hækkar um tæplega 13% frá fyrra mánuði. Af öðrum liðum má nefna að verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 0,2% frá því í janúar og hefur ekki hækkað minna á milli mánaða frá því í nóvember 2007. Á síðustu tólf mánuðum hefur verðlag á mat- og drykkjarvörum hækkað um tæplega 29%.
Til lækkunar á vísitölunni nú kemur lækkun á kostnaði vegna eigin húsnæðis um 3,2% frá fyrra mánuði, sem að mestu má rekja til lækkunar á markaðsverði íbúðarhúsnæðis. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur á síðustu tólf mánuðum hækkað um 21% og skýrist munurinn á vísitölunni með og án húsnæðis af lækkun á fasteignaverði.
Til baka