25. febrúar 2009 09:55
Neytendur þurfa í auknum mæli að líta til kílóa- lítra- og stykkjaverðs vöru til að átta sig á því hvar þeir fá mest magn fyrir lægst verð. Það kom skýrt fram við gerð síðustu verðkönnunar ASÍ 17. febrúar sl. þar sem borið var saman verð á milli ellefu verslana. Neytandinn þarf að átta sig á að mikið er um að sama varan sé seld í mismunandi pakkningastærðum. Aðeins 8 vörur af 40 í síðustu könnun voru beint samanburðarhæfar, hinar þurfti að umreikna í mælieiningaverð.
Sjá nánar hér.
Til baka