23. febrúar 2009 15:40
Tvær sjónvarpsauglýsingar sem ASÍ lét framleiða sl. haust hafa verið tilnefndar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, í flokknum almannaheillaauglýsingar. Alls voru fimm auglýsingar framleiddar í þessari seríu og tvær þeirra, Heimkoman og Seiðkarlinn, hlutu tilnefningar.
Auglýsingarnar gerast allar á landnámsöld og sýna samskipti víkinga og þræla. Hugmyndin var að skapa ýkta en um leið áhugaverða umgjörð um ákveðin skilaboð sem Alþýðusambandið vildi vekja athygli á. Með því að ýkja með húmor réttleysi þrælanna var verið að undirstrika þann árangur sem náðst hefur með verkalýðsbaráttunni og minna um leið á réttindi launafólks.
Jón Gnarr var höfundur handrits og leikstjórar Sammi og Gunni (Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson). Auglýsingastofan ENNEMM og Saga Film sáu um framleiðsluna. Auglýsingarnar voru teknar í september 2008 í Vík í Mýrdal og skörtuðu leikurunum Jörundi Ragnarssyni, Júlíus Brjánssyni, Diddu og Erpi Eyvindarsyni auk fjölda statista.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá tökunum.




Til baka