Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
20. febrúar 2009 10:52

Ný viðamikil rannsókn - óskýrður launamunur mælist 7%

Í byrjun september 2008 gerðu Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og ParX viðskiptaráðgjöf IBM með sér samstarfssamning um rannsókn á launamun kynja á grundvelli gagnasafns ParX um launagreiðslur 2008. Rannsóknin er þáttur í samkomulagi aðila um jafnréttisáherslur sem fylgdi kjarasamningunum 17. febrúar 2008. Öll gagnavinnsla fór fram hjá ParX en niðurstöður voru unnar í samstarfi við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.

Rannsóknin byggir á upplýsingum úr launabókhaldi 37 fyrirtækja og nær til rúmlega sex þúsund starfsmanna. Rannsakað var hvaða áhrif breyturnar kyn,starfsheiti, aldur, starfsaldur í fyrirtæki, menntun, vinnutími og fyrirtæki höfðu áföst laun án óreglulegra yfirvinnugreiðslna. Eftir að fyrrgreindar breytur höfðu verið teknar með í reikninginn stóð eftir að konur voru með rúmlega 7% lægri laun en karlar. Í sambærilegri könnun árið 2006 reyndist óskýrður launamunur 12%. Rétt er að gera þann almenna fyrirvara við niðurstöðurnar að þær byggja ekki á slembiúrtaki heldur á gagnasafniþeirra fyrirtækja sem kjósa að taka þátt í árlegri greiningu á launagreiðslum.

Óskýrður launamunur milli kynja er nokkru minni en í mörgum nýlegum rannsóknum hérlendis og má meðal annars rekja muninn til nákvæmrar starfaflokkunar og upplýsinga um menntun starfsmanna í þessari rannsókn.

Lagt var upp með í rannsókninni að kanna áhrif ábyrgðar í starfi á launagreiðslur en það reyndist ekki hægt. Gögn um frammistöðu eða fjölskylduaðstæður voru heldur ekki tiltæk.

Undanfarin ár hafa fjölmargar rannsóknir verið gerðar á launum karla og kvenna bæði hérlendis og erlendis. Skipta má þessum athugunum í tvennt. Annars vegar er litið til launa kynjanna án þess að skýra þau á nokkurn hátt. Hins vegar er leitast við að finna skýringar á mun á launum karla og kvenna og kannað hve mikið er ekki hægt að skýra með öðru en kynferði.Óleiðréttur launamunur karla og kvenna í fullu starfi hefur farið minnkandi undanfarin ár bæði á Íslandi og annars staðar. Árið 1998 voru regluleg laun íslenskra kvenna í fullri vinnu á almennum markaði tæp 70% af launum karla, en árið 2007 voru þau komin í tæp 80% af launum karla.

Sjá nánar niðurstöður rannsóknarinnar hér.



Til baka


Fréttalisti


Vísitala neysluverðs

Mælir breytingu á verði vörukörfu með fjölmörgum...