19. febrúar 2009 10:32
Skuldir hækka, greiðslubyrði eykst og ráðstöfunartekjur lækka. Þetta er veruleikinn í heimilisbókhaldi flestra fjölskyldna í dag. Staðan veldur mörgum heimilum verulegum vanda en hjá flestum er vandinn þó tímabundinn og úrræði í boði sem gera fólki kleift að vinna sig út úr honum með tímanum. Sá hópur sem við þurfum sértæk úrræði fyrir til þess að forða frá gjaldþroti, eru þau heimili sem í fyrirsjáanlegri framtíð munu ekki geta staðið undir skuldbindingum sínum og hafa verulega neikvæða eignarstöðu sem ólíklegt er að þeim takist að snúa við.
Í heildina eru það hóparnir á þrítugs- og fertugsaldri sem eru viðkæmastir. Þetta eru skuldsettustu hóparnir, með hlutfallslega hæstu greiðslubyrðina og flest börn á framfæri. Líkur eru til þess að í þessum hópi séu einnig flestir þeir sem komið hafa inn á húsnæðismarkaðinn með lítið eigið fé á síðustu tveimur árum og sitja nú í yfirveðsettum eignum.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri samantekt hagdeildar ASÍ um skuldir heimilanna. Hana má lesa í heild sinni hér.
Til baka