18. febrúar 2009 15:22
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands beinir þeirri eindregnu áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar að grípa þegar til markvissra aðgerða til aðstoðar heimilum og fyrirtækjum í landinu. Það er ekki boðlegt að á meðan hriktir í grunnstoðum samfélagsins og fjölskyldum og fyrirtækjum blæðir, horfi þjóðin upp á karp og hráskinnaleik á Alþingi sem engu máli skiptir og engu skilar. Slík lítilsvirðing við þjóðina er ekki líkleg til að auka tiltrú hennar á stjórnmálamönnum en trúverðugleiki þeirra skiptir einmitt sköpum í því endurreisnarstarfi sem framundan er. Miðstjórn Alþýðusambandsins hvetur alþingismenn til að snúa sér að því sem skiptir máli. Þjóðin er í vanda.Verkefnin er mörg og aðkallandi og úrlausn þeirra þolir enga bið.
Til baka