18. febrúar 2009 09:49
Ný skýrsla Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) sýnir að töluvert skortir á að réttindi launafólks séu virt í Japan og mismunun ýmis konar viðgengst þar á vinnumarkaði. Staðan er sérstaklega slæm hjá opinberum starfsmönnum sem hafa takamarkaðan rétt til þátttöku í verkalýðsfélögum og einnig eru hömlur á aðkomu þeirra að kjarasamningum.
Þá eru verkföll meðal opinberra starfsmanna bönnuð í landinu og stéttarfélög í einkageiranum þurfa að láta vita með 10 daga fyrirvara ef þau hyggjast beita verkfallsvopninu. ITUC hefur því skorað á japönsk stjórnvöld að taka í gildi ILO samþykktir 87 og 98 sem heimila opinberum starfsmönnum aðkomu að kjarasamningum og færa þeim verkfallsréttinn.
Nánar má lesa um málið
hér.
Til baka