Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
17. febrúar 2009 14:06

Verða tilskipanir ESB um bann við mismunun teknar í gildi hér á landi?

Þegar tilskipanir ESB um bann við mismunun nr. 2000/78 (almennar reglur um jafna meðferð á vinnumarkaði og í atvinnulífi) og 2000/43 (um jöfn kjör manna án tillits til kynþáttar eða þjóðernislegs uppruna) litu dagsins ljós var það mat íslenskra stjórnvalda að ekki þyrfti að taka þær í gildi hér á landi þar sem þær féllu utan gildissviðs EES samningsins. ASÍ tók hins vegar þá afstöðu, bæði innan samráðsnefndar um EES og opinberlega, að jafnvel þó sannfærandi lögfræðileg sjónarmið leiddu til þess að ekki þyrfti að gildistaka tilskipanirnar hér á landi, þá ætti engu að síður að gera það og í ágúst 2004 lagði ASÍ til að slík lög yrðu sett.

Kveðið yrði á um málsmeðferð og sönnun þegar einstaklingar telja að á þeim hafi verið brotið og þeim mismunað og úrræði sköpuð til að koma í veg fyrir að einstaklingar missi starf sitt eða sé með öðrum hætti refsað fyrir að nýta sér rétt sinn. Kveðið yrði á um söfnun og úrvinnslu upplýsinga um mismunun hér á landi, sett á laggirnar samráð stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og hagsmunasamtaka hlutaðeigandi hópa og að lokum að bætur og viðurlög væru fullnægjandi.

Þessi stefna var ítrekuð og henni fylgt eftir í starfshóp sem Árni Magnússon, þáverandi félagsmálaráðherra ýtti úr vör síðla árs 2005 og sem ætlað var að fjalla um bann við mismunun með hliðsjón af aðstæðum á íslenskum vinnumarkaði. Helgi Hjörvar alþingismaður stýrði þessum starfshóp til lands í lok árs 2008 og var einróma niðurstaða hópsins sú að leggja til að á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins yrði samin sérstök lög til þess að hrinda tilskipununum í framkvæmd á íslenskum vinnumarkaði.

ASÍ telur niðurstöður þessa starfshóps viðunandi í ljósi þeirra markmiða sem sambandið lagði upp með og lýsir sérstakri ánægju sinni með þá sátt sem að lokum tókst um niðurstöður. Nú liggur fyrir nýjum félagsmálaráðherra að láta semja ný lög og vonandi verður þeirra ekki lengi að bíða.

Skýrslu starfshóps um tilskipanir Evrópusambandsins um bann við mismunun má sjá hér.

Tilskipun 2000/78 ( óopinber íslensk þýðing )
Tilskipun 2000/43 ( óopinber íslensk þýðing )

 



Til baka


Fréttalisti


Jafnrétti til launa

Atvinnurekendum ber samkvæmt lögum skylda til að greiða...