09. febrúar 2009 14:51
Fulltrúar aðila vinnumarkaðarins áttu í morgun fund með fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Gylfi Arngrímsson forseti ASÍ segir fundinn hafa verið jákvæðan og það hafi verið sérstakt fagnaðarefni hversu opinskáar og hreinskiptar umræður voru um stöðu efnhagsmála og stöðu heimilanna í landinu. Það sé breyting í rétta átt frá samskiptum verkalýðshreyfingarinnar við fyrri ríkisstjórn.
Með fundinum vildi ríkisstjórnin kynna verkefnaáætlun sína, jafnframt því sem hún lýsti yfir vilja til að eiga náið samstarf við aðila vinnumarkaðarins um verkefnin framundan. Fram kom vilji aðila vinnumarkaðarins til að leggjast á árarnar með ríkisstjórninni í þeirri vinnu en Gylfi Arnbjörnsson segir mikilvægt að ná breiðri pólitískri samstöðu um framgang þeirra á Alþingi. Verkefnavinna með aðkomu verkalýðshreyfingarinnar verður þegar sett í gang.
Fulltrúar ASÍ á fundinum í ráðherrabústaðnum í morgun voru Gylfi Arnbjörnsson forseti, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir varaforseti og Ólafur Darri Andrason deildarstjóri hagdeildar. Ráðherrarnir sem sátu fundinn voru Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félags- og tryggingamálaráðherra.
Til baka