Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
03. febrúar 2009 11:11

Vaxandi ofbeldi gegn verkalýðsforkólfum í Guatemala

Í nýrri skýrslu Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) kemur fram að félagar í verkalýðsfélögum í Guatemala þurfa að lifa við hótanir, mismunun af ýmsu tagi og þeir sem hafa sig mest í frammi í réttindabaráttunni eiga á hættu að gjalda fyrir með lífi sínu. Í skýrslunni er ríkisstjórn Guatemala fordæmd fyrir aðgerðarleysi í slíkum málum, en morð á verkalýðsforkólfum eru illa eða alls ekki rannsökuð og því sjaldan upplýst.

„Þessu skelfingar ástandi verður að linna“, segir Guy Ryder framkvæmdastjóri ITUC.„Verkamenn þurfa að þola stöðuga kúgun og ofbeldi í Guatemala þar sem brotið er á rétti þeirra til að stofna eða ganga í verkalýðsfélög.  Þetta ástand sýnir að ríkisstjórn Guatemala hefur algerlega mistekist að hrinda ILO sáttmálanum í framkvæmd sem hún hefur þó þegar staðfest. Það er ömurlegt að verkamenn geti ekki unnið að réttindamálum sínum án þess að stofna líf sínu í hættu“, segir Guy Ryder.

Skýrsluna í heild má lesa hér.

Til baka


Fréttalisti


Hagvöxtur

er aukning landsframleiðslu á föstu verðlagi milli ára...