Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
20. janúar 2009 14:26

Ný upplýsingasíða stjórnvalda um efnahagsvandann

Vefurinn www.island.is er leiðarvísir fyrir Íslendinga að opinberri þjónustu. Á honum hefur verið settur upp sérstakur vefhluti vegna efnahagsvandans þar sem meðal annars má finna eftirfarandi:

Upplýsingar um úrræði og hvert beri að leita varðandi úrlausnir mála.
Fréttir og tilkynningar frá opinberum aðilum.
Aðgerðir og áætlanir stjórnvalda vegna efnahagskreppunnar, þar með talin áætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Svör við algengum spurningum og upplýsingar um stöðu mála eftir því sem mögulegt er.
Móttaka og miðlun á fyrirspurnum vegna efnahagsvandans.

Vefurinn www.iceland.org/info miðlar upplýsingum á ensku um efnahagsvandann.
Vefurinn þjónar tvíþættu hlutverki, annars vegar að svara spurningum erlendra aðila og veita þeim nauðsynlegar upplýsingar og hins vegar að skýra afstöðu og aðgerðir íslenskra stjórnvalda gagnvart umheimnum. Þar má finna:

Almennar upplýsingar um fjármálakreppuna og áhrif hennar á Ísland.
Atburðarrás bankahrunsins (tímalína) og aðgerðir stjórnvalda.
Svör við algengum spurningum um stöðu mála á Íslandi, meðal annars milliríkjaverslun, ferðamennsku og samskipti Íslands og annarra ríkja vegna málsins.
Upplýsingar fyrir erlenda sparifjáreigendur og fjárfesta.
Fréttir og tilkynningar frá stjórnvöldum vegna efnahagsmála.
Efnahagsáætlun IMF og íslenskra stjórnvalda, sem og aðgerðaáætlanir annarra málaflokka.

Til baka