Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
12. janúar 2009 11:13

Nýjar reglugerðir um virkar vinnumarkaðsaðgerðir

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur sett reglugerð um fjölbreytt vinnumarkaðsúrræði sem atvinnuleitendur geta tekið þátt í samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur, svo sem þátttöku í sérstökum átaksverkefnum, frumkvöðlastörfum og sjálfboðaliðastörfum. Enn fremur fjallar reglugerðin um styrki til náms og námskeiða, búferlastyrki, atvinnutengda endurhæfingu og fleira. Einnig hefur verið sett reglugerð um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði. Reglugerðirnar eru settar með stoð í lögum um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir og unnar í nánu samstarfi við ASÍ og aðra aðila vinnumarkaðarins.


Meginmarkmið vinnumarkaðsúrræða eins og þeirra sem kveðið er á um í reglugerðunum er að sporna gegn atvinnuleysi, auðvelda fólki í atvinnuleit að halda virkni sinni og tengslum við vinnumarkaðinn og skapa fólki leiðir til að bæta möguleika sína til atvinnuþátttöku á nýjan leik.


Starfsþjálfun, reynsluráðning, átaksverkefni og frumkvöðlastörf
Ýmis nýmæli eru í reglugerð um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um búferlastyrki en einnig er kveðið á um úrræði sem eru þekkt hér á landi og hafa áður verið nýtt í einhverjum mæli.
Í reglugerðinni er meðal annars kveðið á um heimildir fyrirtækja og stofnana til að ráða tímabundið til sín atvinnuleitendur sem fá greiddar atvinnuleysisbætur þannig að bæturnar fylgi viðkomandi inn í fyrirtækið en atvinnurekandinn greiði það sem upp á vantar svo hann njóti sambærilegra launakjara og aðrir sem starfa hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda. Vinnumálastofnun greiðir jafnframt mótframlag í lífeyrissjóð.


Ráðningar sem þessar þurfa að byggjast á samningi Vinnumálastofnunar við viðkomandi atvinnuleitanda og atvinnurekanda. Vinnumálastofnun er einnig heimilt að semja beint við atvinnuleitendur um að þeir vinni að þróun eigin viðskiptahugmyndar í tiltekinn tíma án þess að atvinnuleysisbætur skerðist.
Í reglugerðinni er sérstaklega kveðið á um rétt fólks sem fær greiddar atvinnuleysisbætur til þess að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi samhliða virkri atvinnuleit. Gert er ráð fyrir að samningur sé gerður um slík störf milli Vinnumálastofnunar og viðkomandi félagasamtaka sem ber að slysatryggja sjálfboðaliðann. Litið er á sjálfboðaliðastörf sem virkt vinnumarkaðsúrræði þannig að frjáls félagasamtök geti boðið atvinnuleitendum þátttöku.


Búferlastyrkir og náms og námskeiðsstyrkir
Ákvæði reglugerðarinnar um búferlastyrki byggjast í megindráttum á fyrri reglum og framkvæmd þeirra. Nýmæli er hins vegar að ekki er lengur skilyrði fyrir styrk að viðkomandi hafi verið atvinnulaus í þrjá mánuði áður en hann flytur. Búferlastyrkir eru ætlaðir til að auðvelda fólki flutning milli sveitarfélaga hafi því boðist starf í öðru sveitarfélagi en þar sem það hefur skráð lögheimili sitt.
Þá er í reglugerðinni kveðið á um rétt atvinnulausra til sérstakra náms og námskeiðsstyrkja.
Nám og námskeið sem vinnumarkaðsúrræði
Í reglugerð um nám og námskeið sem eru viðurkennd vinnumarkaðsúrræði er tilgreint hvaða nám og námskeið fólk án atvinnu getur stundað og fengið samhliða greiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt áunnum réttindum sínum.



Til baka


Fréttalisti


Atvinnuleyfi

eru leyfi sem gefin eru út til atvinnurekanda...