Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
09. janúar 2009 11:05

Starfsendurhæfingarsjóður – samstarfsverkefni allra aðila á vinnumarkaði

Í gær var undirrituð ný skipulagsskrá fyrir Endurhæfingarsjóð þar sem samtök launamanna og atvinnurekendur hjá hinu opinbera gerðust aðilar að sjóðnum.  Við þetta tækifæri var nafni sjóðsins breytt til að endurspegla betur starfsemi hans og heitir hann nú Starfsendurhæfingarsjóður.

Með þessu er stigið mikilvægt skref í þá átt að tryggja öllum starfsmönnum á vinnumarkaði þjónustu í formi starfsendurhæfingar ef um er að ræða skerta vinnugetu vegna veikinda eða slysa. 

Markmið Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku með aukinni virkni, eflingu efndurhæfingar og öðrum úrræðum.  Sjóðurinn er til húsa að Sætúni 1 í Reykjavík og nánari upplýsingar um starfsemi hans er að finna á  www.virk.is

Myndin hér að ofan var tekin við undirritun nýrra samþykkta fyrir Starfsendurhæfingarsjóð.  Á myndinni eru Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, Gunnar Björnsson skrifstofustjóri Starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Hallur Páll Jónsson mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar, Inga Rún Ólafsdóttir sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, Eiríkur Jónsson formaður KÍ, Guðlaug Kristjánsdóttir formaður BHM, Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA og Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingarsjóðs.



Til baka


Fréttalisti


Dagvinna

Vinna á dagvinnutímabili, eins og það tímabil...