Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
09. janúar 2009 10:23

Jafnréttisþing 16. janúar

Jafnréttisþing föstudaginn 16. janúar kl. 9-17 á Hilton Nordica.

Félags- og tryggingamálaráðherra og Jafnréttisráð boða til Jafnréttisþings í samræmi við lög um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla nr. 10/2008.

Á jafnréttisþingi leggur félags- og tryggingamálaráðherra fram skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála og drög að framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum, en við endanlega gerð hennar skal samkvæmt jafnréttislögum taka mið af umræðum á jafnréttisþingi. Á þinginu verður fjallað um helstu svið jafnréttismála í fyrirlestrum, pallborðsumræðum og málstofum þar sem vænst er þátttöku og hugmynda frá þeim sem þingið sækja.

Forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson er meðal þátttakenda.

Dagskrá jafnréttisþingsins er á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins, www.felagsmalaraduneyti.is. Ekkert þátttökugjald er en þátttakendur eru eindregið beðnir um að skrá sig á vef ráðuneytisins í síðasta lagi þriðjudaginn 13. janúar.

Þingið er öllum opið.



Til baka


Fréttalisti


Kaupmáttur launa

er einfaldlega launahækkanir að frádreginni verðbólgu...