08. janúar 2009 14:49
John Monks framkvæmdastjóri Evrópusambands verkalýðsfélaga (ETUC) er einn ræðumanna á málþingi í París sem hófst í dag um endurreisn kapítalismans í heiminum. Þinginu stýra Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti.Í ræðu sinni í dag sagði John Monks að menn þekktu ástæður fjármálahrunsins en það væri langur vegur frá því að lausn á kreppunni væri í sjónmáli. Hann sagði jafnframt ljóst að stjórnmálamenn hefðu fallið á prófinu, bæði hafi vantað regluverk og pólitískar stofnanir til að hafa hemil á alþjóðavæðingunni sem hafi verið orðin taumlaus.
„Það getur meira en verið að stór hluti jarðarbúa hafi notið tímabundið góðs af hinu opna alheimshagkerfi.Sá ágóði gleymist hins vegar fljótt þegar milljónir manna í Evrópu og annars staðar missa vinnuna“, sagði Monks. Hann bætti við að flæði fjármagns, vöru og þjónustu þyrfti að halda áfram innan skynsamlegra marka og nauðsynlegt væri að bregðast hratt við á alþjóðavísu svo það stöðvaðist ekki.Það gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér ef þjóðir heims hyrfu aftur til haftastefnu og reistu viðskiptamúra í kringum sig. Monks sagði jafnframt að úr rústum kreppunnar þyrfti að rísa nýtt samfélag með félagslegar áherslur, þar sem sanngirni ríkir, störf almennings eru tryggð og minna fari fyrir Casino stemmningunni – The winner takes it all.
Til baka