07. janúar 2009 16:09
Miðstjórn ASÍ mótmælir þeim miklu hækkunum sem urðu á greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni nú um áramót bæði í formi mikilla hækkanna á gjaldskrám og með nýju gjaldi sem sjúklingum er nú gert að greiða við innlagnir á sjúkrahús. Þetta er gert án þess að settar séu reglur um hámarks greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbirgðiskerfinu. Aukin gjaldtaka í heilbrigðisþjónustunni er aðför að velferðarkerfinu. Hún leggst þungt á sjúklinga og tekjulægri hópa og er til þess fallin að hindra aðgengi að þjónustunni og auka misskiptingu. Miðstjórn krefst þess að nú þegar verði settar skýrar reglur um hámarks greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni.
Miðstjórnin lýsir jafnframt áhyggjum af þeim áhrifum sem hækkanir á opinberum gjaldskrám hafa á útgjöld heimilanna og til hækkunar á verðbólgu og þar með verðtryggðum skuldum. Þetta á bæði við um hækkanir á gjaldtöku í heilbrigðisþjónustu sem og aðrar hækkanir á opinberri gjaldtöku auk hækkanna á gjaldskrám sveitarfélaga sem boðaðar hafa verið.
Til baka