Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
06. janúar 2009 09:24

Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) krefst vopnahlés á Gaza

Þar sem fjöldi fallinna og særðra í átökum Ísraelsmanna og Palestínumanna á Gaza heldur áfram að stíga hefur Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) ítrekað kröfu sína um skilyrðislaust og tafarlaust vopnahlé á svæðinu.Aðeins þannig sé hægt að koma matvælum og hjálpargögnum til nauðstaddra íbúa á Gaza.

Talið er að yfir 500 manns hafi fallið í bardögunum á Gaza síðustu 10 daga, þar af 100 óbreyttir borgarar.2500 íbúar á svæðinu hafa særst í átökunum. Stjórn ITUC hefur ritað Ban Ki-Moon framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna bréf þar sem hann er hvattur til að beita sér fyrir tafarlausu vopnahléi á Gaza og koma af stað friðarviðræðum milli Ísraelsmanna og Hamas hið fyrsta.



Til baka