Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
18. október 2007 12:45

Hagdeild ASÍ spáir þokkalegum hagvexti

Í haustskýrslu Hagdeildar ASÍ er birt ný hagspá fyrir árin 2008 og 2009. Spáð er þokkalegum hagvexti, þó að hann dragist eitthvað saman frá því þegar hann var hvað mestur. Atvinnuleysi mun heldur aukast, en verða þó mun skaplegra en á árunum fyrir síðustu uppsveiflu. Helsta áhyggjuefnið er að verðbólgan verður óásættanlega mikil mestallt spátímabilið.

Í skýrslunni er auk hagspárinnar að finna greinar um launamyndun á Íslandi; launaþróunina á árunum 2004-2007; og einnig um launahlutfallið og lágmarkslaunin í sögulegu og alþjóðlegu samhengi.

Í inngangi að skýrslunni segir: „Við stöndum núna á vissum tímamótum. Ofþenslan í hagkerfinu er senn að baki og kjarasamningar eru lausir frá næstu áramótum. Það er því fróðlegt að skoða hvernig okkur hefur miðað á liðnum árum. Hverju hefur góðæri liðinna ára skilað okkur í raunverulegum verðmætum? Ekki er um það deilt að undanfarinn áratug hefur kaupmáttur vaxið mikið að meðaltali. En þegar tölurnar bak við meðaltölin eru skoðaðar, kemur í ljós að kaupmáttur margra er að rýrna. Ójafnvægið leikur því marga grátt. Eftir því sem verðbólgan hækkar verða stærri hópar af kaupmáttaraukningunni.“

Sjá haustskýrslu Hagdeildar í heild sinni

Til baka