Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
03. október 2007 10:39

Átak Vinnumálastofnunar


Eftirlitsátak með fyrirtækjum vegna erlendra starfsmanna

Vinnumálastofnun hleypir í gær, 2. október, af stokkunum sérstöku eftirlitsátaki með fyrirtækjum vegna erlendra starfsmanna undir heitinu  allt í ljós,  í samvinnu við Félagsmálaráðuneytið og ASÍ. Markmið átaksins eru að tryggja að starfsemi erlendra fyrirtækja sé í samræmi við íslensk lög og kjarasamninga og að innlendir atvinnurekendur tilkynni ráðningar starfsmanna sem eru ríkisborgarar í átta af hinum tíu nýju EES-ríkjum. Þá er markmið með átakinu að tryggja að vinnuveitendur virði réttindi erlends launafólks og að gefa þau skilaboð að framkvæmd og eftirlit laga sé skilvirk og að ekki sé annað liðið en að fyrirtæki, innlend sem erlend virði íslensk lög.

Á blaðamannafundi þar sem átakið var kynnt fagnaði forseti ASÍ þessu framtaki og lýsti yfir vilja Alþýðusambandsins til að styðja við framkvæmd þess.

Nánar um eftirlitsátak Vinnumálastofnunar.



Til baka


Fréttalisti


Dráttarvextir

eru refsivextir sem innheimtir eru ef krafa...