Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
27. september 2007 18:45

Veikindaréttur


Undanfarið ár hafa farið fram umfangsmiklar viðræður milli fulltrúa ASÍ og SA um heildarendurskoðun á veikinda-, slysa- og örorkubótarétti þeirra sem eru á almennum vinnumarkaði. Voru þessar viðræður settar í gang til þess að freista þess að finna haldbærar leiðir til þess hvoru tveggja í senn að bæta réttindi og lífsgæði þeirra sem lenda í alvarlegum veikindum og minnka heildarútgjöld samfélagsins vegna ört vaxandi örorku. Þessu markmiði telja samningaaðilar að megi ná með því að fjárfesta markvisst í endurhæfingu til þess að aðstoða fólk til að komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir áföll eða veikindi.

Eftir að samningsaðilar náðu samkomulagi s.l. vor um útlínur nýs kerfis hefur nú náðst samkomulag um kostnaðar- og verkaskiptingu einstakra aðila sem að þessum réttindum koma, með einföldun og samræmingu í huga. Hafa þessar hugmyndir verið til kynningar innan ASÍ undanfarnar vikur, fyrst í stjórnum landssambandanna og síðar í stjórnum og trúnaðarráðum aðildarfélaganna. Í framhaldi af þessum kynningum og umfjöllun í aðildarfélögunum mun á næstu vikum verða óskað eftir formlegu samningsumboði á sameiginlegu borði ASÍ um þetta tiltekna mál.

Hjálagt má sjá það efni sem dreift hefur verið á þessum kynningarfundum.

Kynning á veikinda-, slysa og örorkurettindum.

Yfirlit yfir helstu réttindi.

Áfallatryggingar - nýtt réttindakerfi.

Nánari upplýsingar veitir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ.




Til baka


Fréttalisti


Gengislækkun

veldur því að erlendur gjaldeyrir verður dýrari í íslenskum...