Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
27. september 2007 13:05

Dagsbrúnarfyrirlestur


DAGSBRÚNARFYRIRLESTURINN

Laugardaginn 29. september næstkomandi, kl. 14.00, verður árlegur fyrirlestur Bókasafns Dagsbrúnar fluttur í húsakynnum
ReykjavíkurAkademíunnar að Hringbraut 121.

Að þessu sinni mun Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur tala út frá riti sínu Við brún nýs dags. Saga Verkamannafélagsins Dagsbrúnar 1906-1930. Að fyrirlestrinum loknum munu sagnfræðingarnir Margrét Guðmundsdóttir og Árni Daníel Júlíusson hvort um sig gagnrýna rit Þorleifs.

Að fyrirlestrinum standa, auk Bókasafns Dagsbrúnar, Efling-stéttarfélag og ReykjavíkurAkademían.

Allir eru velkomnir. Enginn aðgangseyrir.



Til baka


Fréttalisti


Brúttólaun

Með heitinu brúttólaun er átt við heildarlaun...