Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
27. september 2007 11:45

Listasafn ASÍ


Laugardaginn 29. september kl. 15:00, verður opnuð í Listasafni ASÍ sýning á verkum myndlistarmannsins Magnúsar Tómassonar.

Sýningin ber heitið DRASL Ferðalag um skissubækur Magnúsar Tómassonar

Magnús er fæddur í Reykjavík 1943. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Bogasal Þjóðminjasafnsins árið 1962, þá 19 ára gamall. Ári síðar innritaðist hann í Listaháskólann í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan frá málaradeild og deildinni fyrir "Mur og Rumkunst" árið 1970.

Þó Magnús væri við nám í Danmörku var hann í góðum tengslum við það sem var að gerast í myndlist hér heima og var hann einn af stofnendum Gallerís SÚM þegar það var stofnað 1968.

Magnús Tómasson hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á Íslandi og erlendis og hann hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir list sína. Verk eftir hann eru m.a. i eigu Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur og flestir íslendingar kannast við verk hans, Þotuhreiður,  sem staðsett er við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Á sýningunni í Listasafni ASÍ sýnir Magnús m.a. skúlptúra og myndþrennur sem hann nefnir Formrím auk myndaraðarinnar Samanburðarlandafræði en hugmyndin að elstu myndinni í þeirri röð er frá árinu 1977.

Magnús verður með leiðsögn um sýninguna sunnudaginn 14. október kl. 15:00.

Sýningin er hluti af listahátíðinni SEQUENCES 

Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13:00 til 17:00 og aðgangur er ókeypis.

Nánari upplýsingar

asiinfo@centrum.is

og í sima 511 5353



Til baka