26. september 2007 18:22
Vika símenntunar 2007 er haldin 24.-30. september. Að þessu sinni er lögð áhersla á að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun og hvatt til þess að huga sérstaklega að læsi og lestrarörðugleikum á vinnustað.
Það er menntamálaráðuneytið stendur fyrir viku símenntunar en framkvæmd verkefnisins er í nánu samstarfi við símenntunarstöðvarnar níu á landsbyggðinni og Mími-símenntun á höfuðborgarsvæðinu.
Nánar um dagskrá vikunnar og fleira sem tengist símenntun má lesa á vef Mímis-símenntunar með því að smella hér.
Hægt er að komast inn á vefsvæði annarra símenntunarmiðstöðva með því að mella hér.
Til baka