13. september 2007 14:03
Atvinnuleysi er nánast óbreytt frá í síðasta mánuði eða um 0,9%. Alla jafnan er atvinnuástandið tiltölulega gott framan af hausti. Ólíklegt er samt að atvinnuleysi minnki enn frekar þar sem það er nú þegar mjög lítið og byrjar gjarnan að aukast þegar kemur fram í nóvember.
Í ágúst voru að meðaltali 1.476 manns skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun eða um 102 færri en í síðasta mánuði. Laus störf hjá vinnumiðlunum í lok ágúst voru 486 eða 16 færri en í síðasta mánuði.
Þrátt fyrir að heildaratvinnuleysið sé nánast óbreytt frá fyrra mánuði bendir Vinnumálastofnun á að atvinnuleysið hafi heldur dregist saman meðal kvenna. Þannig fór atvinnuleysi meðal kvenna á höfuðborgarsvæðinu úr 1,2% í 1,0%

Til baka