12. september 2007 10:49
Verðbólga mældist 4,2% í byrjun september og hefur vísitala neysluverðs því hækkað um 1,32% milli mánaða. Flestir meginliðir vísitölunnar hækka.
Sá liður sem hefur mest áhrif til hækkunar nú er verð á fötum og skóm sem hækkaði um 13,6% milli mánaða enda er sumarútsölum nú víða lokið. Húsnæðisliður vísitölunnar hækkaði einnig talsvert eða um 2,5% aðallega vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis en einnig að nokkru vegna hækkunar vaxta undanfarið. Verð á bensíni og olíum hækkaði um 3,2% milli mánaða. Matur og drykkjarvörur hækka um 0,7%, þar af fiskur um 1,9%, ávextir um 2,1% og grænmeti um 2,7%.
Samkvæmt fastskattavísitölu neysluverðs, sem lýsir breytingum á vísitölu neysluverðs hefði ekki komið til breytinga á virðisaukaskatti þann 1. mars sl., mældist verðbólga 6,0% í september sem gefur til kynna að undirliggjandi verðbólga er umtalsverð í hagkerfinu.Til baka