Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
05. september 2007 13:52

Styrkir til íslenskunáms fyrir útlendinga


Alþýðusamband Íslands vekur athygli aðildarfélaga sinna á að frestur til að sækja um styrki til íslenskukennslu fyrir útlendinga haustið 2007 rennur út 7. september. Sækja verður um styrkina til menntamálaráðuneytisins. Þetta er í annað sinn sem ráðuneytið veitir slíka styrki.

Í mars síðastliðnum voru veittir styrkir til 60 aðila til að halda námskeið fyrir samtals 3.360 nemendur og var fjöldi fyrirtækja og stofnana í þeim hópi.

Sjá nánar á vef menntamálaráðuneytisins: (http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Auglysingar/allar/nr/4196)




Til baka


Fréttalisti


Félagsleg undirboð

Félagsleg undirboð háttsemi erlendra fyrirtækja sem lýsir sér einkum í því að starfsmönnum þeirra eru ekki greidd laun í samræmi við lög og kjarasamninga í gistiríki, þeim er ekki tryggður sá aðbúnaður og öryggi á vinnustað sem lög gera kröfu um og svikist er um að greiða lög- og samningsbundin gjöld af þeim til stofnana samfélagsins, þ.m.t. stéttarfélaga. Með þessu er brotið bæði á hagsmunum viðkomanda starfsmanna og grafið undan stofnunum samfélagsins, tiltrú almennings á þeim og vilja þeirra til að fjármagna þær með sköttum og öðrum gjöldum.