Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
05. september 2007 09:47

Gagnlegur fundur um vinnumarkaðsráð

Nauðsynlegt er að byggja brýr milli þeirra sem fást við framkvæmd vinnumarkaðsaðgerða. Þetta eru skilaboð frá samráðsfundi sem ASÍ stóð fyrir hinn 30. ágúst sl. um nýskipuð svæðisbundin vinnumarkaðsráð. Á fundinn mættu fulltrúar ASÍ í vinnumarkaðsráðunum svo og fulltrúar í atvinnumála- og vinnumarkaðsnefndum ASÍ.

Fluttar voru framsögur um stöðu og hlutverk nýskipaðra vinnumarkaðsráða og þau verkfæri sem þau hafa til að ná markmiðum sínum. Líflegar umræður fóru fram á milli framsagna þar sem m.a. var skipst á skoðunum um fjármögnun vinnumarkaðsaðgerða og svigrúm vinnumarkaðsráðanna til að láta til sín taka. Signý Jóhannesdóttir, formaður atvinnumálanefndar ASÍ, lýsti því m.a. yfir að nauðsynlegt væri að byggja brýr milli þeirra sem fást við framkvæmd vinnumarkaðsaðgerða.

Samráðsfundurinn markar upphaf að samstarfi ASÍ og fulltrúa þess í vinnumarkaðsráðunum. Fyrir hönd ASÍ mun Atvinnumálanefnd taka að sér að halda utan um þetta samstarf til að byrja með. Fulltrúar launafólks í vinnumarkaðsráðunum eru hvattir til að snúa sér til formanns nefndarinnar Signýjar Jóhannesdóttur eða starfsmanns hennar Stefáns Úlfarssonar með hugmyndir um samstarf. Einnig er hægt að leita til fulltrúa ASÍ í stjórn Vinnumálastofnunar, Halldórs Grönvolds og Sigurðar Bessasonar.

Tengd gögn:

   Óformleg fundargerð

   Erindi og framsögur:

   Fundarsetning: Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ

   Áherslur ASÍ við undirbúning laganna: Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ

   Atvinnuástandið, horfurnar og mögulegar aðgerðir: Stefán Úlfarsson, hagfræðingur hjá ASÍ

   Tækifæri á sviði símenntunar: Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri FA

   Efni lagt fram:

   Verkefni fundarins

   Lög um vinnumarkaðsaðgerðir nr. 55/2006

   Erindisbréf vegna vinnumarkaðsráða

   Fulltrúar ASÍ í vinnumarkaðsráðum



Til baka


Fréttalisti


Kaupmáttur launa

er einfaldlega launahækkanir að frádreginni verðbólgu...