Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
17. ágúst 2007 17:18

Misjöfn álagning á skiptibókamörkuðum

Mismunur á innkaupsverði og útsöluverði bóka á skiptibókamörkuðum er allt að 80,6% samkvæmt verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í 5 bókaverslunum sem kaupa og selja notaðar kennslubækur fyrir framhaldsskólanemendur. Algeng álagning á notaðar bækur er 45%-67%.

Þegar verslað er á skiptibókamarkaði bókaverslananna skiptir mismunurinn á inn á útsöluverði miklu máli. Nemendur geta sparað sér háar upphæðir með því að kynna sér hvar þeir fá hagstæðustu kjörin.

Griffill reyndist oftast með lægsta útsöluverð notaðra bóka eða í 16 tilfellum af 25. Penninn-Eymundsson reyndist oftast með hæsta útsöluverðið eða á 16 titlum. Penninn-Eymundsson greiddi oftast hæst verð til nemenda fyrir notaðar bækur eða í 18 tilfellum.

Verð var kannað á skiptibókamörkuðum í eftirtöldum verslunum: Máli og menningu Laugavegi, Skólavörubúðinni Smiðjuvegi, Pennanum-Eymundsson Kringlunni, Office 1 Skeifunni og Griffli Skeifunni.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Sjá nánar mynd og niðurstöður í töfluformi

Prenta grein

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Til baka