16. ágúst 2007 19:26
Mikill munur reyndist á verði námsbóka í könnun sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi í sjö bókaverslunum á höfuðborgarsvæðinu í dag fimmtudag. Kannað var verð á 29 algengum nýjum náms- og orðabókum og 26 notuðum kennslubókum í framhaldsskólum.
Allt að 80,3% munur var á hæsta og lægsta verði milli verslana á nýjum bókum og 111,1% á notuðum bókum.
Griffill í Skeifunni reyndist oftast með lægsta verðið á nýjum bókum eða á 13 titlum af 29 en Office 1 var með lægsta verðið á 12 nýjum titlum. Griffill í Skeifunni var einnig oftast með lægsta verðið á notuðum bókum eða í 15 tilfellum. Bókabúð Máls og menningar reyndist oftast með hæsta verðið á nýjum bókum eða í 21 tilfelli. Penninn Eymundsson í Kringlunni var oftast með hæsta verðið á notuðum bókum eða á 14 notuðum titlum.
Mikill munur er á verði nýrra og notaðra bóka. Þannig er ekki óalgengt að nýjar bækur séu 50%-70% dýrari en notaðar bækur. Rétt er að taka fram að ekki er lagt mat á gæði þeirra bóka sem seldar eru notaðar heldur er hér einungis um beinan verðsamanburð að ræða.
Námsmenn ættu einnig að hafa hugfast að verð á algengum bókatitlum breytast oft ört hjá verslunum við upphaf skólaárs. Úrval notaðar bóka á skiptibókamörkuðum var mjög misjafnt eftir verslunum þegar könnunin var gerð en getur breyst með skömmum fyrirvara.
Kannað var verð í eftirtöldum verslunum: Máli og menningu Laugavegi, Skólavörubúðinni Smiðjuvegi, Bóksölu stúdenta Hringbraut, Pennanum-Eymundsson Kringlunni, Office 1 Skeifunni, Griffli Skeifunni og Bókabúðinni Iðnú Brautarholti. Í öllum verslunum voru seldar nýjar bækur en notaðar bækur voru ekki seldar í Bóksölu stúdenta og Iðnú. Verslunin Iða í Lækjargötu heimilaði ekki að verð í versluninni væri kannað.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Sjá nánar mynd og niðurstöður í töfluformi
Prenta grein
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum eða við sölu nema með heimild ASÍ
Til baka