Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
13. ágúst 2007 14:26

Lítil breyting á vístölu neysluverðs


Verðbólga mældist 3,4% í ágúst og hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,04% frá því í júlímánuði. Líkt og undanfarið hefur kostnaður vegna íbúðarhúsnæðis mest áhrif til hækkunar vístölunnar en kostnaður af eigin húsnæði hækkaði um 1,5% frá fyrra mánuði. Á móti þessari hækkun vega útsöluáhrif á fatnað og skó mest en þessar vörur lækka í verði um tæp 7% milli mánaða. Eins lækkar verð á bensíni og olíum um 1,4% frá því í júlí. 

Matar- og drykkjarvöruliður vísitölunnar sem mælir verðlag í matvöruverslunum er nánast óbreyttur frá því í júlímánuði. Athygli vekur að enn sjást engin merki frekari lækkunar á hótel- og veitingarhúsalið vístölunnar sem var einn þeirra liða sem lækkun á virðisaukaskatti og vörugjöldum þann 1. mars sl. náði til. Verð á hótelum og veitingarhúsum lækkaði um rúm 3% milli febrúar- og marsmánaðar þegar breytingin tók gildi, en hefur síðan hækkað aftur um 1,7%. Augljóst er að sú 8,6% lækkun á þessum lið sem Hagstofan áætlaði að lækkun á virðisaukaskatti og vörugjöldum ætti að skila neytendum er ekki í augsýn.

Samkvæmt fastskattavísitölu neysluverðs, sem lýsir breytingum á vísitölu neysluverðs hefði ekki komið til breytinga á virðisaukaskatti þann 1. mars sl., mældist verðbólga 5,3% í ágúst sem gefur til kynna að undirliggjandi verðbólga er enn umtalsverð í hagkerfinu.



Til baka


Fréttalisti


Jafnrétti til launa

Atvinnurekendum ber samkvæmt lögum skylda til að greiða...