Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
09. júlí 2007 15:06

Verðhækkanir í lágvöruverslunum óviðunandi

Samkvæmt niðurstöðum úr verðmælingum í lágvöruverslunum á tímabilinu frá mars til maí hækkar verð í þremur lágvöruverðskeðjum en lækkar lítillega í einni. Þessi niðurstaða kemur á óvart þegar það er haft í huga að áhrif af lækkun vörugjalda hefði átt að koma fram á umræddu tímabili og einnig hefur gengi íslensku krónunnar styrkst að undanförnu.

Verð lækkað einungis um 4,2% til 6,7% á tímabilinu frá desember 2006 til maí 2007 en á því tímabili átti lækkun á virðisaukaskatti og vörugjöldum að skila neytendum 8,8% lægra matarverði. Að auki styrktist krónan um 6% frá 15. desember 2006 til 15. maí 2007 og hefði verð í lágvöruverslunum því átt að lækka umtalsvert meira en raunin varð.

Sjá nánar.

 



Til baka


Fréttalisti


Atvinnuleyfi

eru leyfi sem gefin eru út til atvinnurekanda...