Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
20. júlí 2007 13:41

Verðlagseftirlit ASÍ

Í yfirlýsingu ASÍ segir m.a. að verkalýðshreyfingin, bæði ASÍ og einstök stéttarfélög, hafi um mjög langt skeið staðið að öflugu eftirliti með verðlagi í landinu, einkum matavælaverði. Verðlagseftirlit ASÍ í núverandi mynd var sett á laggirnar að ósk ríkisstjórnarinnar árið 2001 vegna meints samráðs um verðlagningu grænmetis. Hefur ríkisstjórnin ítrekað undirstrikað mikilvægi Verðlagseftirlits ASÍ og nú síðast með gerð sérstaks þjónustusamnings um ítarlegt eftirlit og eftirfylgni með lækkun virðisaukaskatts af matvælum og afnámi vörugjalda þann 1. mars s.l.

Vilhjálmur heldur því fram að ASÍ fái 30 mill.kr. af opinberu fé til reksturs verðlagseftirlitsins. Hið rétta er að rekstur Verðlagseftirlits ASÍ er að meginhluta á ábyrgð sambandsins, aðeins 3 mill.kr. af þessum fjármunum renna til almenns reksturs eftirlitsins, auk 1,5 mill.kr. með fyrrnefndum þjónustusamningi vegna skattkerfisbreytinganna 1. mars s.l. Þar að auki hafa aðildarsamtök ASÍ lagt þessu verkefni lið með beinum hætti.



Til baka


Fréttalisti


Fæðingarorlof

er samkvæmt lögum allt að þriggja mánaða tímabil...