29. júní 2007 13:09
Laugardaginn 30. júní verður opnuð í Listasafni ASÍ sýning á verkum í eigu safnsins.
Það var Ragnar Jónsson, forstjóri í Smára, sem gaf ASÍ 120 listaverk að gjöf sem stofn í Listasafn ASÍ þann 17. júní 1961 og hefur safnið verið í stöðugum vexti síðan. Sumarsýningin er í öllu húsinu og spannar breitt tímabil í íslenskri listasögu. Í Ásmundarsal verða sýnd málverk eftir listamennina Jóhannes Kjarval og Jón Stefánsson frá fimmta og sjötta áratug síðustu aldar. Verkin eiga það sameiginlegt að sýna hið dramatíska og stórbrotna í íslenskri náttúru. Þar á meðal er Fjallamjólk, eitt þekktasta verk Kjarvals og jafnframt íslenskrar listasögu.Í Gryfjunni eru nýleg verk eftir Guðrúnu Kristjánsdóttur, Birgi Andrésson og Olgu Bergmann sem hvert á sinn hátt fjallar um náttúru og/eða menningu í samtímanum.
Í Arinstofu er sýnt pólitiskt verk eftir Önnu Eyjólfsdóttur sem jafnframt byggir á arkitektúr Ásmundarsalar.
Listasafn ASÍ er opið frá kl. 13.00 - 17.00, alla daga nema mánudaga.
Aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar í Listasafni ASÍ
s.511-5353
listasi@centrum.is
www.asi.is
Til baka