Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
28. júní 2007 13:22

96 þing ILO - Alþjóðavinnumálastofnunarinnar

96 þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar var haldið í Genf dagana 29. maí til 15. júní s.l.

Á þinginu var samþykkt ný alþjóðasamþykkt um réttarstöðu fiskimanna og felst í henni mikil réttarbót fyrir fiskimenn um allan heim. Að venju var síðan fjallað ítarlega um réttindi og stöðu launafólks, samtaka þeirra og atvinnurekenda á vinnumarkaði og farið yfir þróun þeirra mála.

Sérstaklega var fjallað um brot 26 aðildarríkja.

Vakin er sérstök athygli á umfjöllun um barnavinnu í Kína ( Samþykkt 182 ) og nauðungarvinnu í Mýanmar (Burma). Annars vegar þar sem Ísland á nú í fríverslunarviðræðum við Kína og hins vegar vegna þess að þrátt fyrir viðskiptabann á Mýanmar halda Íslendingar áfram innflutningi þaðan þó lítill sé.

Vefföng þar sem nálgast má skýrslur og niðurstöður frá 96 þingi ILO

96 þing ILO 2007 - Gögn

Sjá skýrsluna í heild sinni.



Til baka