26. júní 2007 15:22
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, Finnbjörn A. Hermannsson formaður Samiðnar og Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ áttu fund í dag með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og starfsmönnum ráðuneytisins .
Á fundinum lýsti ASÍ áhyggjum sínum vegna viðræðna um fríverslun sem teknar hafa verið upp milli Íslands og Kína. Um árabil hafi ASÍ ásamt alþjóðasamtökum launafólks reynt að hafa áhrif á óviðunandi ástand mannréttinda launafólks í Kína. Þar í landi séu verulegar hömlur lagðar á starfsemi verkalýðsfélaga og engin þeirra geti talist frjálst í skilningi alþjóðasáttmála um mannréttindi og réttindi launafólks.
Fulltrúar ráðuneytisins upplýstu ASÍ um stöðu viðræðna um fríverslun við Kína og jafnframt var ákveðið að hittast aftur eftir sumarleyfi þegar ráðrúm gæfist til að fara efnislega yfir einstaka þætti þessara viðræðna.
Til baka