25. júní 2007 14:35
Verðlagseftirlit ASÍ birtir nú niðurstöður verðmælinga í verslunum á Austurlandi til þess að meta hvernig lækkanir á virðisaukaskatti og vörugjöldum þann 1. mars sl. skila sér út í verðlag til neytenda á svæðinu. Birtar eru verðbreytingar í verslunum frá Vopnafirði að Höfn í Hornafirði ásamt áður birtum niðurstöðum fyrir þær verslunarkeðjur sem starfrækja verslanir á svæðinu. Annars vegar eru skoðaðar verðbreytingar á tímabilinu frá desember 2006 til febrúar 2007, og hins vegar milli febrúar og mars 2007 þegar virðisaukaskattur og vörugjöld af matvörum voru lækkuð.
Verðbreytingar í verslunum á Austurlandi voru á bilinu 0,3% lækkun til 2,8% hækkun milli desember ´06 og febrúar ´07. Mest hækkaði verð í verslunum Samkaup-Strax á Austurlandi á tímabilinu, eða um 2,8% en verð lækkaði lítillega eða um 0,3% í versluninni Kauptúni á Vopnafirði á sama tímabili. Milli verðmælinga í febrúar og marsmánuði lækkaði verð um 5,5% til 11% í verslunum á svæðinu. Mest lækkun, 11% var í Krónunni sem starfrækir verslun á Reyðarfirði en verð lækkaði minnst eftir breytingar í Kauptúni á Vopnafirði um 5,5%.

Samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands átti lækkun á virðisaukaskatti þann 1.mars sl. að lækka verð á mat- og drykkjarvörum um 7,4% og niðurfelling á vörugjöldum um 1,3% til viðbótar. Lækkun á virðisaukaskatti átti að skila sér í lægra vöruverði í verslunum þegar þann 1.mars en verðlækkanir vegna niðurfellingar á vörugjöldum mátti hins vegar áætla að tækju 1-2 mánuði að skila sér út í verðlag. Líkt og í öðrum landshlutum sem verðlagseftirlið hefur birt niðurstöður úr standa verslanir sig mis vel í að skila lækkuninni út í vöruverð til neytenda. Í flestum verslunum lækkar verð á milli verðmælinga í febrúar og mars um 6-7% sem er heldur minna en áætlun Hagstofunnar gerði ráð fyrir.
Töflurnar hér að neðan sýna verðbreytingar á einstaka vöruflokkum í hverri verslun á tímabilinu. Mælt er það verð sem viðskiptavinir greiða fyrir vörur á hverjum tíma og skýrast sveiflur í verðlagi einstakra vöruflokka af verðbreytingum á milli mælinga sem bæði geta stafað af verðhækkunum/-lækkunum og tilboðsverðum sem eru í verslunum þegar mælingar eru gerðar. Almennar hækkanir urðu í flestum vöruflokkum á tímabilinu frá desember til febrúar en verð lækkaði umtalsvert milli mælinga í febrúar og mars. Mest verðlækkun á því tímabili var á vöruflokkum eins og gosi, söfum og vatni.Þá lækkaði verð sykri og sætindum víðast umfram aðrar matvörur.

Verðmælingar verðlagseftirlits ASÍ stóðu yfir í um vikutíma í senn í desember, febrúar og mars. Rétt er að taka fram að ekki er um verðsamanburð á milli verslana að ræða heldur er hér einungis lagt mat á verðbreytingar innan hverrar verslunar fyrir sig. Við útreikninga á verðbreytingum verslana er reiknuð út vegin breyting á verði vörukörfu í hverri verslun. Grunnur að vog vörukörfunnar er byggður á þeirri vog sem Hagstofa Íslands notar til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Mikilvægt er að taka fram að vöruúrval þeirra verslana sem hér eru skoðaðar er mjög misjafnt og vöruúrval í einstaka vöruflokkum er afar mismunandi eftir verslunum sem getur haft áhrif á niðurstöður úr veginni verðbreytingu. Einnig getur ástand verðmerkinga í verslunum haft mikil áhrif á nákvæmni verðmælinga þar sem ávallt er miðað við það verð sem er sýnilegt fyrir viðskiptavini inni í versluninni.
Smellið hér til að skoða myndir betur.
Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ
Til baka